"Sú furðufrétt birtist að fjárlaganefnd hefur ákveðið veita Háskólanum á Hólum 40 milljónir króna án þess að um þá peninga hafi verið beðið," skrifar Valgerður Bjarnadóttir þingmaður Samfylkingarinnar og nýr pistlahöfundur hér á hringbraut.is. Og bætir við, nokkuð undrandi: "Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í nefndinni sagði að fjárveitingin kæmi þeim sem stjórna skólanum ekkert við."
Valgerður undrast ekki aðeins þetta verklag heldur óttast það einnig, minnug þeirra tíma þegar þingmenn gátu skammtað héruðum og félögum peninga úr ríkissjóði að vild, en fyrir það hafi verið tekið á síðasta kjörtímabili: "Það er vont til þess að hugsa að nú er smám saman verið að breyta vinnubrögðum aftur til fyrri vegar. Þeir sem ráða ætla auka aftur bein pólitísk afskipti og íhlutun," skrifar Valgerður og spyr hvort næstu skref á þeirri vegferð séu að skammta þróunarfé að vild þingmanna og koma þeim aftur fyrir í bankaráðum. Og hún botnar skrif sín: "
Það er sannarlega ekkert nýtt undir sólinni. En ekki get ég sagt: heimur batnandi fer."
Eyðir skattfé sem ekki er beðið um
Fleiri fréttir
Nýjast