Evróvisjón: fyrirgefðu greta salome

Um fátt hefur verið meira rætt í dag en hvort forsíðumynd Fréttablaðsins af Gretu Salome sé niðrandi og þá ekki bara fyrir söngkonuna sem einstakling heldur hvort myndin sem varpar áherslu á beran bossa söngkonunnar sé dæmi um kynjakerfið. Hringbraut sagði fyrst fjölmiðla frá óánægju femínista.

Evróvisjón hefur nú beðið Gretu Salome afsökunar á að myndin hafi verið tekin og birt. Ljósmyndarinn sem tók myndina er á vegum keppnishaldara.

Paul Jordan, yfirmaður fjölmiðladeildar Evróvisjón-keppninnar, segir í skriflegu svari til fréttastofu RÚV að myndin hafi verið fjarlægð úr myndasafni keppninnar að beiðni íslenska hópsins. Þeim hafi fundist myndin óviðeigandi. Hún var fjarlægð í gærkvöld, að sögn ljósmyndarans sem tók myndina umdeildu og hefur Greta verið beðin afsökunar.