Evrópustofu lokað í haust

Evrópustofa mun loka þann 1. september en samningur um rekstur upplýsingamiðstöðvarinnnar rennur út í lok ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Evrópustofu.

Þar kemur fram að meginmarkmið Evrópustofu hafi verið að stuðla að aukinni umræðu, þekkingu og skilningi á eðli og starfsemi Evrópusambandsins. Evrópustofa var alfarið rekin af þýska almannatengslafyrirtækinu Media Consulta í gegnum samning fjármagnaðan af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

\"Evrópustofa hefur lagt áherslu á að miðla hlutægum upplýsingar um Evrópusambandið, vera vettvangur virkrar umræðu um málefni sem tengjast ESB og auka almenna þekkingu á Evrópusambandinu.“

Evrópustofa tók til starfa í janúar 2012 í húsi við Suðurgötu 10 í miðbæ Reykjavíkur.

\"Við þökkum samfylgdina undanfarin ár og vonum að þið haldið áfram að fylgjast með málum hjá ESB á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.