Evrópusambandið og Víetnam hafa lokið meira en þriggja ára samningaviðræðum vegna fríverslunarsamnings á milli sín. Skrifað var undir samningin í dag. Undirskriftin er þó gerð með þeim fyrirvara að Evrópuþingið samþykki samninginn. Hafa nokkrir þingmenn Evrópuþingsins gagnrýnt gerð samningsins vegna mannréttindabrota víetnamskra stjórnvalda og gæti því farið svo að samningurinn verði ekki samþykktur á þinginu.
Mun samningurinn fella niður um 99 prósenta tolls á fjölmörgum vörum. Árið 2018 nam heildar útflutningur Evrópusambandsins til Víetnam rúmlega 5.300 milljörðum króna, en landið er sextánda stærsta viðskiptaríki sambandsins.