Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir fréttir frá Bretlandi sýna að Evrópusambandið sé að tvístrast. Hann segir afleiðingar af ákvörðun bresku þjóðarinnar hafa ófyrirséðar afleiðingar.
Jón Daníelsson hagfræðingur við London School of Economics segir fréttir af þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi veru í Evrópusambandinu vera með stærstu fréttum síðustu ára og að afleiðingarnar verði miklar og eigi eftir að reynast Bretum þungbærar.
Jón Baldvin segist allt eins gera ráð fyrir að Skotar vilji út úr breska samveldinu. Ætli þeir gangi ekki síðan í Norðurlandaráð með öðrum norrænum ríkjum, sagði Jón Baldvin og að það yrði eflaust til góða fyrir þær þjóðir.
Pundið á eftir að hrynja, fasteignaverð á eftir að hrynja og allt þetta mun hafa áhrif víða. Líka á Íslandi, sagði Jón Daníelsson. Hann benti á að minna menntaðir kjósendur og eldri kusu útgöngu en 75 prósent yngri kjósenda kusu að vera áfram í Evrópusambandinu.
Jón Daníelsson segir að Alex Salmond, sem fór fremst fyrir sjálfstæðisbaráttu Skota, segir að nú þurfi að kjósa aftur um hvort Skotar eigi að vera áfram hluti af breska samveldinu.
Jón Daníelsson segist allt eins gera ráð fyrir að Danir, Svíar og Hollendingar hugsi sinn gang og þessar þjóðir, og í þessari röð, eigi jafnvel eftir að yfirgefa Evrópusambandið.
„Evrópusambandið er að tvístrast. Ég las grein um daginn þar sem sagði að aðeins tíu prósent Tékka vill vera áfram innan Evrópusambandsins sem er mjög merkilegt þar sem staðan þar var allt önnur,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Daníelsson segir að fari sem horfi muni miðsstýring innan Evrópusambandsins aukast. Jón Baldvin segist lesa úr stöðunni að miðjan í pólitíkinni hafi orðið undir.