Evrópuhræðslan er auðlæknanleg

Evrópuhræðsla (á ensku „Europhobia“) skaut óvænt upp kollinum í sumar eins og hvert annað frjókornaofnæmi. Krankleikinn lýsir sér í því að venjulegt fólk heldur að allt hið illa komi frá Evrópu.

Á þessum orðum byrjar Thomas Möller nýjan pistil sinn á hringbraut.is þar sem hann fer yfir sögu veikinnar sem hafi raunar lengi legið niðri eftir að Ísland varð aðili að EES og þar með fengið aukaaðild að ESB \"en þá nutu Íslendingar hressilegra vinda sem blésu úr austurátt. Aukið viðskiptafrelsi, víðsýni, stöðugleiki og aukin samskipti við Evrópu höfðu góð áhrif og minnkuðu neikvæð áhrif veikinnar.\"

Nú hafi veikin allt í einu blossað upp, um þriðjungur þjóðarinnar sé illa farinn af veikinni: \"Eftir að Grikkland lenti í vandræðum með sín fjármál í sumar hefur fjöldi þeirra þeirra sem hafa verið með þráláta Evrópuhræðslu komið fram í fjölmiðlum og hrósað sér og glaðst yfir því að hafa haft rétt fyrir sér alla tíð. Þeir fullyrða að Evrópusamstarfið geti eyðilagt heilu atvinnugreinarnar, valdi atvinnuleysi og skuldasöfnun og að Ísland tapi sínu fullveldi ef það eykur Evrópusamvinnu.\"

Hann segir veika fólkið líta á það sem kost að geta fellt gengi sjálfstæðs gjaldmiðils og þannig rýrt kjör almennings með einu handtaki: \"Evrópuhræðslan hefur leitt til þess að stór hópur Íslendinga fyllist einangrunaráráttu og minnimáttarkennd. Jafnvel ráðamenn þjóðarinnar telja að maturinn í Evrópu sé svo eitraður að hann breyti hugarfari fólks. Aðrir ráðamenn telja að orkan þar sé svo skítug að hún geti mengað hina hreinu íslensku orku. Einn þingmaður hélt því fram að í Evrópu ríkti hungursneið og önnur óáran sem gæti komið til Íslands ef Evrópusamstarfið væri aukið,\" skrifar Thomas.

Hann segir Evrópufóbíu á hæsta stigi lýsa sér í þeim ótta að ESB steli öllu heila Íslandi gangi þjóðin í sambandið: \"Mjög slæmt tilfelli Evrófóbíu kom fram nýlega hjá einum áhrifamiklum Heimssýnarmanni sem líkti þeim sem vilja skoða kosti Evrópusamstarfs við þá sem vildu koma á kommúnisma á Íslandi. Hann líkti talsmönnum Evrópuhugsjónarinnar um viðskiptafrelsi og lýðræði ítrekað við sporgöngumenn Stalíns. Kommúnísminn drap um 60 milljónir manna meðan Evrópusambandið hefur tryggt frið í Evrópu í um 80 ár.\"

Þesi óþægilega fóbía sé þó auðlæknanleg: \"Hún felst í því að leyfa þjóðinni að kjósa um framhald viðræðna um aðild að ESB eins og núverandi stjórnarflokkar lofuðu margsinnis fyrir síðustu kosningar.\" Það gleymist nefnilega oft í umræðunni, skrifar Thomas að Ísland er Evrópuland: \"Við Íslendingar erum Evrópubúar með evrópska menningu. Stærsti hluti okkar viðskipta og samstarfs er við Evrópuþjóðir. Þannig erum við öll Evrópusinnar sem er okkur eins eðlilegt og að vera umhverfissinnar, lýðræðissinnar og jafnréttissinnar. Sem segir að Evrópuhræðslan er auðlæknanleg.\"