Verðlaunahátíð Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna verður haldin í Hörpu í desember árið 2020. Um viðamikið samstarfsverkefni er að ræða milli ríkis og borgar og hafa viðræður við Evrópsku kvikmyndaakademíuna staðið yfir í nokkurn tíma, en tvær aðrar borgir sóttust eftir að halda hátíðina. Ráðgert er að samhliða henni fari fram fjölmargir hliðarviðburðir tengdir evrópskum kvikmyndum og kvikmyndagerð.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Til þessa hafa fjórir Íslendingar hlotið þessi eftirsóttu verðlaun. Árið 1991 fékk Hilmar Örn Hilmarsson verðlaun fyrir bestu tónlistina í kvikmyndinni Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Friðriksson og árið 2000 var Björk Guðmundsdóttir hlutskörpust í flokki leikkvenna í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í mynd Lars von Trier, Dancer in the Dark. Sama ár hlaut hún einnig áhorfendaverðlaun fyrir leik sinn í myndinni og það ár hlaut Ingvar E. Sigurðsson sömuleiðis áhorfendaverðlaun fyrir leik sinn í aðalhlutverki í Englum alheimsins undir leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar.
Stofnað var til verðlaunanna árið 1988 en megintilgangur þeirra er að efla og vekja athygli á evrópskri kvikmyndagerð. Verðlaunahátíðin er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum Evrópu. Hátíðin hefur laðað til sín erlenda gesti víða að úr kvikmyndaheiminum og vel á annað hundrað erlenda blaðamenn. Því má búast við að hátíðin í Reykjavík hljóti mikla umfjöllun og stuðli að öflugri kynningu og markaðssetningu á Íslandi og Reykjavík sem ákjósanlegum áfangastað ferðamanna og tökustað fyrir kvikmyndir. Þá mun hátíðin beina athygli að íslenskri kvikmyndagerð og menningu.
Í tilkynningunni er greint frá því að stjórnendur Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna hafi skoðað aðstæður í Hörpu og telja að húsið sé forsenda þess að hægt sé að halda viðburð sem þennan á Íslandi. Ráðgert er að hátt í 1.400 gestir verði viðstaddir verðlaunahátíðina sjálfa og að sýnt verði beint frá henni, hér heima og víða erlendis. Tímasetning hátíðarinnar henti vel þar sem desember sé sá mánuður þar sem einna líklegast er að slíkir viðburðir hafi jákvæð áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf, auk þess sem margvísleg tækifæri gefast til þess að vekja athygli á íslenskri menningu.
Hátíðin fór fram í Sevilla á Spáni á síðasta ári en hún hefur einnig farið fram í Lundúnum, París, Róm, Barcelona, Varsjá, Kaupmannahöfn, Tallinn, Möltu, Ríga og Wroclaw, svo dæmi séu nefnd.