Evrópa: ekki kvarta út af flóttafólki

Þórir Guðmundsson sviðsstjóri hjá Rauða krossinum segir fjöldi flóttamanna sem leggja á sig að reyna að komast til Evrópu ekki vera vandamálið heldur hvernig tekið er á móti þeim þegar þangað er komið. Þetta kom fram í máli hans í þættinum Heimsljósi á Hringbraut í gærkvöld þar sem rætt var um straum flóttafólks frá Afríku til Evrópu, svo oft og tíðum hefur endað með skelfingu á síðustu vikum, svo sem fréttir herma.


Þórir, sem gjör.ekkir vandann, segir að aðstæður flóttamanna séu afleitar, til að mynda á Ítalíu þar sem meginþorri flóttamanna frá Afríku og botni Miðjarðarhafs komi í land - og flóttafólkið lendi meira og minna á götunni.


Þó sé aðeins um nokkur hundruð flóttamanna að ræða í 500 milljóna samfélagi á meðan lönd eins og Líbanon þar sem 4 milljónir búa hefi tekið á móti einni milljón flóttamanna frá Sýrlandi.


Hann segir Íslendinga geta lagt þar sitt að mörkum með þróunarsamvinnu - til að koma í veg fyrir að fólk verði að flýja vegna fátæktar, með því að taka á móti stærri flóttamannahópum frá átakasvæðum, og með því að endursenda ekki hælisleitendur á grundvelli Dyflinnarsamningsins.


Hægt er að nálgast þáttinn í heild sinni á hringbraut.is, svo og klippur úr honum.