Evran styrktist við brotthvarf grikkja

Ásgeir Jónsson hagfræðingur segir að hugsanlegt brotthvarf Grikkja úr evrusamstarfinu myndi styrkja evruna til muna. Hinsvegar séu litlar líkur á það gerist því slíkt myndi hola Evrópusambandið að innan. 

Þetta kemur fram í Heimsljósi kvöldsins þar sem Ásgeir, Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur og Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður, sem lengi vann í Brussel, ræddu áhrif gríska harmleiksins á Evrópusambandið og evruna. 

Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður segir litlar líkur á að ESB myndi leyfa slíka þá atburðarrás að Grikkir yfirgefi sambandið, enda sé eðli þess að ná samningum um málefni  og ágreiningsmál aðildarríkja. 

Eiríkur Bergmann telur einfaldlega að of mikið sé í húfi fyrir Evrópusambandið til að sleppa Grikkjum lausum – það sé þörf á að hafa sátt um útvörð Evrópu og landamæri Grikklands, sérstaklega í ljósi flóttamannavandans sem er að sliga ríki eins og Grikkland, Ítalíu og Möltu.

Heimsljós gærkvöldsins má sjá í heild sinni hér: