Evran orðin miklu ódýrari en áður

Raun­gengi evru gagn­vart krónu hef­ur ekki verið lægra síðan vorið 2008 sem merkir með öðrum orðum fyrir Íslendinga að hlutfallslegur launakostnaður hér á landi fer hækkandi.

Sam­kvæmt út­reikn­ing­um Yngva Harðar­son­ar hag­fræðings, sem gerðir voru að beiðni Morg­un­blaðsins, hef­ur raun­gengi evru og þeirra mynta sem hún var upp­haf­lega sett sam­an úr verið að meðaltali 134 krón­ur síðan 1972. Raun­gengi evru gagn­vart krónu þarf því að veikj­ast um 8% til að meðaltal­inu sé náð.

Gengi krón­unn­ar hrapaði við efna­hags­hrunið. Það hafði áhrif á sögu­legt meðaltal raun­geng­is evru gagn­vart krón­unni. Gengi krón­unn­ar er sögu­lega séð enn veikt. Þessi þróun, ásamt launa­hækk­un­um, hef­ur í för með sér að hlut­falls­leg­ur launa­kostnaður fer hækk­andi, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.