Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir evruna ekki vera neina töfralausn. Heldur tilraun sem mistókst. Þetta kemur fram í Þjóðbraut í kvöld.
Katrín er í þættinum í kvöld ásamt Brynjari Níelssyni. Þar verður farið yfir hið pólitíska svið, svo sem um flugvöllinn, vexti og ofurbónusa og hvað er hægt og hvað á að gera þeirra vegna.
Katrín segir evruna hafa mistekist þar sem í henni eru þjóðir með mjög ólíkan efnahag og það sem einni kann að henta getur verið vonlaust fyrir aðra. Af þeim sökum er efnahagsstaðan erfið víða og atvinnuleysi með því sem mesta sem þekkist.