Evert þjálfari rengir Þórólf: „Ein rannsókn segir ekki neitt"

Evert Víglundsson einkaþjálfari og eigandi Crossfit Reykjavíkur er afar ósáttur með að líkamsræktarstöðvar á landinu séu enn lokaðar. Hann segir að rök Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um að halda líkamsræktarstöðvum lokuðum ættu ekki við almennileg rök að styðjast.

„Einhvern tímann minntist Þórólfur á einhverja rannsókn að fólk væri líklegra til að smitast af veirunni í líkamsræktarstöðvum. Ég get líka sýnt fram á rannsóknir sem ég googla og finn á tveimur mínútum að reykingar séu hollar, fita sé óholl og kolvetni séu holl. Ein rannsókn segir ekki neitt;" sagði Evert í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Hann segir að það sé fáránlegt að að líkamsræktarstöðvar hafi verið lokaðar samtals í fimm mánuði á síðasta ári. „Hreyfing er grunnurinn að því að vera heilbrigður og það er fáránlegt að það sé lokað enn þá, við erum okkar eigið heilbrigðiskerfi."

Þá tekur hann fram að enginn hafi smitast í Crossfit Reykjavík. „Það komu tveir smitaðir einstaklingar á æfingu til okkar en vegna þess að öllum sóttvarnareglum var fylgt til hins ýtrasta, spritt á öllum stöðum og tveggja metra reglunni fylgt þá töldu sóttvarnaaðilar ekki ástæði til að skoða málið nánar. Enda fórum við eftir öllum reglum."