Eva Pandora Baldursdóttir opnaði Aðalfund Pírata í gær. Í opnunarræðunni talaði hún um fyrstu skref sín í stjórnmálum. Frá því að hún tók þátt í starfi Pírata sem nýliði og þar til hún settist síðan á þing nokkrum mánuðum síðar.
Á vef Pírata kemur einnig fram að í opnunarræðunni ræddi Eva Pandora einnig um þá fordóma sem Píratar verða fyrir. Flokkurinn hefur verið sagður sagður stefnulaus og líkt við skip sem rekur án afláts. Sagði Eva að í hennar huga væri það fjarri sannleikanum. Bætti hún við að Píratar væru frjálslyndur lýðræðisumbótaflokkur sem stefni að því að breyta stjórnsýslu landsins þannig að hún komi Íslendingum öllum að gagni.
Þá minntist hún á þann gríðarlega árangur sem þingflokkur og sveitarstjórnarfólk Pírata hefur náð á síðustu árum og nefndi þar sem dæmi afnám bleika skattsins á tíðarvörur, endurskoðun lögræðislaga og tillögur um styttingu vinnuvikunnar. Þá nefndi hún líka að starfið í Píratahreyfingunni mætti efla og betrumbæta með því að styrkja betur grasrótina í hreyfingunni.
Lauk hún svo ræðunni á þeim orðum að Píratar séu „frábær og fjölbreytt hreyfing sem býr yfir mögnuðum mannauð og krafti sem þarf til þess að koma á raunverulegum lýðræðisumbótum í landinu.“
Hér fyrir neðan má lesa ræðuna í heild sinni:
Kæru Píratar
Innilega til hamingju með daginn. Það er mér sannur heiður að ávarpa ykkur í dag við þetta hátíðlega tilefni sem aðalfundurinn okkar er. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá svo vel mætt í dag og sú staðreynd veitir mér eldmóð og innblástur inn í helgina og fyrir starfið framundan.
Ég er svo sannarlega ánægð að vera hér með ykkur í dag og að vera komin aftur inn í grasrótarstarfið eftir smá hlé. Þó ég eigi það á hættu að hljóma væmin þá er bara svo yndisleg orka hérna inni og mér þykir það endurspegla Pírata í dag og hvert við erum komin sem hreyfing. Þau gildi sem við vinnum eftir endurspeglast í menningu flokksins og því er mikilvægt að við reynum öll eftir fremsta megni að hafa gildin okkar í heiðri í öllu starfi og samskiptum, bæði innan flokks sem og útávíð. Það sem skiptir mestu máli að mínu mati er að:
-Við erum málefnaleg
-Við leitum eftir aðstoð
-Við viðurkennum mistök
-Við virðum tíma hvers annars
-Við látum hvort annað njóta vafans
-Við tölum við fólk, frekar en um fólk
-Við leggjum okkur fram við að hlusta
-Við nálgumst samvinnuhnökra lausnamiðað
-Við leitumst ávallt við að gera mörk okkar skýr
-Við leggjum áherslu á styrkleika okkar frekar en veikleika
-Við berum virðingu fyrir þeim trúnaði sem okkur er sýndur
-Við berum sjálf ábyrgð á eigin tilfinningum, orðum og gjörðum Og -Við leyfum öðrum að njóta viðurkenningar fyrir hugmyndir sínar og störf
Við höfum sannarlega ekki siglt lygnan sjó síðan við komum fyrst fram á sjónarsviðið á árunum eftir hrun. Píratar eru óhefðbundin stjórnmálahreyfing, hópur hugsjónarfólks kom saman til þess að reyna að stuðla að auknu gagnsæi í stjórnsýslu og verndun og eflingu borgaralegra réttinda og er það undirstaða Pírata um allan heim.
Ástæða þess að ég persónulega hreifst af Pírötum, eftir að hafa verið ráfandi í stjórnmálum í nokkurn tíma, var grunnstefnan. Í grunnstefnu Pírata felst m.a. að:
●Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir. Í þessu felst að Píratar móti stefnu sína í ljósi gagna og þekkingar sem er aflað óháð því hvort tillaga virðist í fyrstu æskileg eða ekki. Afstaða Pírata til hugmynda er óháð því hverjir talsmenn hennar eru.
●Píratar beita sér fyrir eflingu og verndun borgararéttinda.
●Píratar telja að allir einstaklingar eigi rétt á friðhelgi í sínu einkalífi. Friðhelgi einkalífsins snýst um vernd hinna valdaminni frá misbeitingu hinna valdameiri.
●Píratar telja gagnsæi eiga mikilvægan þátt í að almenningur sé upplýstur og þar af leiðandi hæfur til lýðræðislegrar ákvörðunartöku. Gagnsæi snýst um að opna hina valdameiri gagnvart eftirliti hinna valdaminni. og seinast en ekki síst:
●Píratar telja að allir hafi rétt til að koma að ákvarðanatöku um málefni sem varða þá. Réttur er tryggður með styrkingu beins lýðræðis og eflingu gagnsærrar stjórnsýslu. Athugið að þetta þýðir ekki endilega að allir eigim alltaf að fá að taka allar ákvarðanir sjálfir heldur hafa aðkomu að ákvörðununum.
Þátttaka almennings stuðlar nefnilega að betri ákvörðunum sem endurspegla velmegun, hagsmuni og áhyggjur þeirra sem mögulega verða fyrir áhrifum af þessum ákvörðunum. Þátttaka almennings byggir á þeirri trú að þegar teknar eru ákvarðanir, eigi þeir sem ákvörðunin hefur áhrif á, rétt á að taka þátt í ákvarðanatökuferlinu. Þessi þátttaka almennings getur verið í formi upplýsingagjafar, samráðs, samtals eða samstarfs. Öll þessi form eru mikilvæg og höfum við Píratar reynt eftir fremsta megni að fylgja því eftir, hvort sem er á sveitastjórnarstigi eða á Alþingi.
Við Píratar höfum alla tíð verið gagnrýnd fyrir að vera óskilgreinanlegur flokkur, við erum breið fylking þar sem fyrirfinnst alls konar fólk - hvort sem fólk er til vinstri eða hægri, hálaunað eða láglaunað, höfuðborg eða landsbyggð, kennarar, sjómenn, forritarar, bændur eða hvað annað. Við höfum verið talin vera stefnulaus og okkur jafnvel líkt við stjórnlaust skip sem rekur á haf út án nokkurs skipstjóra né áhafnar. Í mínum huga gæti þetta ekki verið lengra frá sannleikanum. Við erum frjálslyndur lýðræðisumbótaflokkur sem höfum það að markmiði að breyta stjórnsýslu landsins þannig að hún starfi í þágu fólksins, en ekki öfugt. Til þess að það geti orðið, til þess að fólkið og almenningur í landi geti haft raunveruleg áhrif þarf að innleiða nýja stjórnarskrá. Píratar á Alþingi lögð fram nýja stjórnarskrá og hefur ætíð barist ötullega fyrir innleiðingu hennar. Við trúum að fólkið í landinu eigi það skilið að á það sé hlustað og mark á því tekið.
Við viljum hlusta á það sem fólkið í landinu hefur að segja, því við erum öll fólkið í landinu. Þetta endurspeglast í flokksstarfinu okkar og uppbyggingu grasrótarinnar. Hjá Pírötum er nefnilega hægt að koma inn sem algjör nýliði í grasrótarstarfinu og ætla sér e.t.v. bara að taka sín fyrstu skref í flokksstarfi en endað svo “óvart” inni á þingi nokkrum mánuðum seinna. Trúið mér, ég hef reynslu af því.
Píratar hafa náð ótrúlegum árangri, bæði í málum sem lögð hafa verið fram en líka í því að bæta stjórnmálamenninguna og orðræðuna. Það var enginn að tala um gagnsæi áður en Píratar komu fram á sjónarsvið - núna er gagnsæi orðin sjálfsögð krafa í öllum stjórnmálaflokkum landsins. Gagnsæi er orðið normið og það er að stórum hluta Pírötum að þakka. Á Alþingi fengum við í gegn:
-lækkun bleika skattsins á tíðarvörur og getnaðarvarnir
-endurskoðun lögræðislaga
-tillögu um styttingu vinnuvikunnar Í sveitarstjórn höfum við náð gríðarlegum lýðræðisumbótum og svo lengi mætti telja.
Fólkið okkar á þingi og sveitarstjórnum hefur unnið þrekvirki í krefjandi umhverfi og ég gæti talið upp öll þau frábæru mál sem okkar fólk hefur unnið að, en þá stæði ég líklega hérna uppi í allan dag. Og þó mér þætti það e.t.v. ekki leiðinlegt er ég ekki viss um að það vekti endilega kátínu allra.
Við viljum gera meira, við getum meira, við þurfum aðkomu að ákvörðunarvaldinu í landinu. Til þess að svo megi verða þurfum við að styrkja grasrótina okkar. Við þurfum fleira fólk sem er til í að vinna að þessu með okkur. Við þurfum að halda áfram þeirri vegferð sem við erum komin á að endurskipuleggja grasrótarstarfið og vinnuferla. Við þurfum að halda áfram á þessari vegferð og gera jafnvel enn betur. Ég vil hvetja alla þá sem áhuga hafa og finna sig með okkar áherslum til að íhuga vel og vandlega: hvað get ég gert til að hafa áhrif?
Ég bý í litlu samfélaginu úti á landi en þegar maður býr í smærri samfélögum skilur maður vel að ef maður vill að eitthvað gerist þá er enginn betur til þess fallinn að koma því í verk en maður sjálfur. Það er ekki endalaust hægt að bíða eftir að einhver annar geri hlutina. Við skulum ekki bíða eftir að stjórnsýsla landsins geri eitthvað. Við skulum gera það. Og við getum það!
Við höfum sýnt það margoft í verki að við erum búin að slíta barnsskónum og erum tilbúin til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru. Mitt leiðarljós í lífinu er að takast á við það sem kemur með gleði, húmor og kærleika gagnvart náunganum. Það gerir lífið einfaldlega bara skemmtilegra. Og það er sannarlega skemmtilegt að starfa með Pírötum. Við erum frábær og fjölbreytt hreyfing sem býr yfir mögnuðum mannauð og krafti sem þarf til þess að koma á raunverulegum lýðræðisumbótum í landinu.
Takk fyrir.