Í tilefni af því að Eurovision vikan er hafin fékk Lóa til sín fyrrum Eurovisionfaranna og söngdívurnar, þær Ernu Hrönn og Heiðu Ólafs. Lóa spyr þær um samstarf þeirra, hvernig kom það til og hvernig það er að upplifa hina svokölluðu Eurovision „búbblu”, sem svo oft er talað um. Þær segja líka frá því þegar þær skruppu á klósettið rétt áður en þær áttu að stíga á svið á svokölluðu dómararennsli og hittu funheita aðdáendu sem höfðu lært spor þeirra og báðu þær um að stíga nokkur spor. Hér má sjá sýnishorn úr þætti kvöldsins en hann er á dagskrá kl.20 og endursýndur kl.22.
Eurovision stemning á hringbraut í kvöld
Fleiri fréttir
Nýjast