Felix Bergsson segir að Eurovision snúist um það sem er efst á baugi í heimspólitíkinni, og í fyrra hafi það verið fjölbreytileikann og að samþykkja aðra fyrir það sem þeir eru. Hinn harða löggjöf í austri, til að mynda Rússlandi, hafi haft mikil áhrif á það að Conchita Wurst hafi unnið keppnina. Þannig séu það í raun hápólitísk úrslit.
Evrópubúar hafi í raun valið Conchitu sem samnefnara fyrir það hvað Evrópa stendur fyrir, gegn fordómum og ofsóknum á hinsegin fólk. Felix var gestur Karls Ágústs Úlfssonar í þættinum Helginni sem frumsýndur var á föstudagskvöld á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.
Hann segir það sérstaklega ánægjulegt að það skuli vera dragdrottning á 10 cm háum hælum sem dragi Eurovisionkeppnina til höfuðborgar hámenningarinnar Vín. Conchita hafi verið gerð heiðursborgari í litla þorpinu sínu í kjölfarið - sem hafi verið búið að kvelja hana alla tíð vegna kynvitundar hennar.