Eurovision 2017

Íslands tólf...eða kannski bara tíu stig. Greiningardeild Ariona baknka skoðar kostnað þess að halda Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.  Keppnin hefst í kvöld með pompi og prakt. Þetta er í 62. annað skipti sem keppnin er haldin. En í 30. skipti sem Ísland tekur þátt. Svala Björgvinsdóttir er fulltrúi lands og þjóðar og stígur Svala á sviðið í kvöld með lagið\"Paper.\"

Eins og áður eru væntingar miklar enda er Ísland eina Norðurlandaþjóðin sem ekki hefur unnið Eurovision. Það kostar skilding að taka þátt og að vinna keppnina.

Greiningardeil Arion banka hefur velt fyrir sér fórnarkostnaðinum. Sem dæmi þá væri hægt að framleiða fjórar seríur af spennuþættinum \"Ófærð\". Byggja mætti 143 meðalstórar íbúðir.  Gefa mætti öllu Íslendingum 7 ABBA á vinyl. 

Ekki skal líta framhjá jákvæðum áhrifum sem keppnin hefur á ferðaþjónustuna. Þetta er gríðarleg landkynning.  Fyrir suma skiptir upphefðin miklu meira máli en kostnaðurinn.  Það er jú alltaf heiður að vinna! Þannig að áfram Svala og áfram Ísland!

 

rtá

 

Nánar  www.arionbanki.is