Euro-Market málið svonefnda hefur nú tekið nýja stefnu því pólsk yfirvöld hafa fallið frá alþjóðlegri handtökuskipun og framsalskröfu á hendur eins eiganda Euro-Market verslananna. Málið hófst á sínum tíma með miklum látum og var kynnt til sögunnar sem umfangsmikil rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi en svo er að sjá að málið hafi fjarað út og að það hafi ekki verið eins umfangsmikið og sagt var.
Þegar málið kom upp snerist það að sögn lögreglunnar um skipulagða brotastarfsemi sem sneri að fíkniefnainnflutningi, peningaþvætti, fjársvikum, brotum á vopnalögum, lyfjalögum og fíkniefnaframleiðslu. Pólsk yfirvöld óskuðu eftir að fá fyrrnefndan mann framseldan í desember 2017 en beiðninni var hafnað þar sem ekki væri heimilt að framselja mann sem sætti gæsluvarðhaldi eða farbanni vegna rannsóknar annars máls en þess sem framsals væri krafist fyrir. Landsréttur staðfesti þetta. Maðurinn var síðan úrskurðaður í farbann með vísan til framsalskröfunnar. Í kjölfar þess úrskurðar var framsalið heimilað með dómsúrskurði.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Haft er eftir Steinbergi Finnbogasyni, verjanda mannsins, að málið sé með algjörum ólíkindum. Það hafi hafist með mikilli skrautsýningu á fréttamannafundi og sé nú orðið að engu. Bara kostnaðurinn við framsalshluta málsins hljóti að hlaupa á tugum milljóna og nú hafi Pólverjar bara fellt þann hluta niður.
Haft er eftir Steinbergi að skjólstæðingur hans hafi fengið svokallað griðabréf frá pólskum yfirvöldum. Honum sé því óhætt að fara til Póllands og gefa skýrslu og geti svo snúið aftur hingað til lands ef hann kýs það. Skjólstæðingur hans þurfti að leggja út tryggingagreiðslu og lofa að mæta til skýrslugjafar í Póllandi.
Samkvæmt svari lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við fyrirspurn Fréttablaðsins er rannsókn málsins lokið og verður það sent ákærusviði til meðferðar.