Esb útganga breta

 

 

Innan EFTA starfar svonefnt EES-ráð þeirra EFTA ríkja sem eru með sérsamninginn við Evrópusambandið (ESB)  sem í daglegu tali kallast EES-samningurinn sem er samningur um aðild Íslands Noregs og Lichtenstein að Evrópska efnahagssvæðinu.

Samningurinn er fríverslunarsamningur á milli EFTA ríkjanna (ekki þó Sviss) sem eru aðilar að EES og ESB.

Ráðherrarnir áttu nýverið fund með Michael Barnier sem er franskur. Hann er aðalsamningamaður ESB í væntanlegum viðræðum um útgöngu Stóra-Bretlands úr Evrópusambandinu. 

Óvíst er hvenær þær viðræður hefjast. Ef þær þá hefjast yfirhöfuð.

Michael Barnier gaf ráðherrunum skýr fyrirheit um að haft yrði náið samráð við EFTA-ríkin fjögur um framgang viðræðan ESB og Stóra-Bretlands.    

Fréttaskýrendur hallast nú frekar að því að breskir ráðamenn gerir sér óraunhæfar væntingar um framgang viðræðna ESB og Stóra-Bretlands um farsæla útgöngu landsins úr sambandinu.

Hafa sömu féttaskýrendur það eftir helstu oddvitum ESB í aðalstöðvunum í Brussel að eftir fund Jean-Claude Juncker forseta framkvæmdastjórnar ESB og Theresa May forsætisráðherra Stóra-Bretlands að hann hafi stórar efasemdir um farsæla framvindu þessara viðræðna ef þær þá verða yfirhöfuð.

Óheppileg ummæli eru eignuð Jean-Claude Juncker um Theresa May í samtali við Angelu Merkel kanslara þýska Sambandslýðveldisins. \"Hún býr á annari Vetrarbraut en við\" á hann að hafa sagt. 

Þetta er eins og hver önnur munnmælasaga sem ekki fæst staðfest.

Kosningabaráttan á Stóra-Bretlandi einfaldar ekki málið. Þingkosningar verða þar hinn 8.júní nk. Theresa May vonast eftir að fá afgerandi umboð breskra kjósenda til að semja um útgöngu Sameinaða konungdæmisins úr ESB.  

Fréttaskýrendur telja að nú sé svo komið að þó Bretar sjálfir haldi að Þýskland og Frakkland leggi svo mikið upp úr breskum viðskiptum og velvild og stuðningi að löndin fagni samningi um samvinnu Breta við ESB - jafnvel þó sú samvinna sé takmörkuð og með hangandi hendi -  þá fáist þessi skoðun ekki staðist.

Bretum sé nú ótvírætt gefið í skyn að ESB ríkin komist vel af án þess að versla við Breta - ef svo ber undir - og vissulega án ráðlegginga þeirra um öll mál.

ESB fer sér að engu óðslega í útgöngumálum Breta segja fréttaskýrendur. Bent er á að ekki sé um neitt að semja. Úganga er einfaldlega brottför sem ekki þarf að semja um.

Stóra-Bretland verður þá aftur í stórum hópi Evrópuþjóða sem kjósa að vera utangarðs ESB.

rtá   

Nánar www.dw.news.com   www.bbc.com