Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir túlkun ráðherraráðs Evrópusambandsins afdráttarlausa á bréfi utanríkisráðherra um aðildarumsókn Íslendinga. ESB-umsóknin sé enn í fullu gildi og hægt verði að taka upp þráðinn þar sem honum sleppti fyrir tveimur árum.
Þetta kemur fram í viðtali Eyjunnar við Árna Pál í tilefni tveggja ára afmæli ríkistjórnarinnar. Hann segir bréf Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra einungis hafa verið til heimabrúks, en hefði engin önnur áhrif á stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu.
Ísland hafir því ennþá þann rétt sem fylgir stöðu umsóknarríkis.
„Það er því alveg ljóst, eins og staðan er í dag, að afloknum kosningum 2017 munum við geta látið fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort þráðurinn skuli tekinn upp að nýju og að fengnu jáyrði þjóðarinnar við því gætum við sent bréf til Evrópusambandsins og einfaldlega sagt að við vildum halda áfram. Þannig að möguleikinn fyrir Ísland að halda áfram ferlinu er enn opinn af hálfu Evrópusambandsins. Honum hefur ekki verið lokað. Það er mikill árangur fyrir okkur sem þjóð og mikil verðmæti í því fólgin," segir Árni Páll í viðtalinu sem birtist í gær.
Árni Páll fær svo liðsstyrk úr óvæntri átt í dag því Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins segir í bloggi sínu að því miður sé túlkun Árna hárrétt, og umsóknin standi eins og sést best þegar vefur ESB sé skoðaður.