Esb styrkist en liðast ekki í sundur

Evrópusambandið mun þróast og styrkjast þrátt fyrir Brexit, segir Jóna Sólveig Elínardóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og aðjúnkt við stjórnmálafræðideild á Hringbraut í kvöld. Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í Bretlandi 23.júní voru margir sem sáu svart framundan hjá sambandinu og að það myndi að einhverju leyti liðast í sundur.  Jóna Sólveig, segir að þróunin sé þvert á móti að verða í hina áttina. Stuðningur við aðild eykst til dæmis á Norðurlöndum. Efnahagserfiðleikar í álfunni og innflytjendamál eru stórir málaflokkar sem kalla ennþá á úrlausnir líkt og áður en Brexit varð. Það eru verkefni sem ESB þarf klárlega að vinna betur úr og hefði hvort eð er þurft að gera, hvort sem Bretar eru í sambandinu eða ekki, meinar Jóna Sólveig. Brexit sýndi einfaldlega að þessi verkefni eru raunveruleg, almenningur í löndum Evrópu vill betri lausnir í þessum málum og finna fyrir meira öryggi. Jóna Sólveig telur mögulegt að Bretar fái einhvers konar EES samning „plús eitthvað“, eins og hún orðar það. Þar með myndi þér fara íslensku leiðina en gera svo aukalega saminga um annað.  Það er „pólitískur ómöguleiki“ fyrir Breta að fylgja ekki atkvæðagreiðslunni eftir með úrsögn úr sambandinu, segir Jóna Sólveig. Þingið verði að samþykkja að virkja 50.grein sáttmálans.