Evrópusambandið styður Breta í ásökunum gagnvart Rússum vegna taugaeitursárásarinnar í Salisbury og hefur kallað sendiherra ESB í Moskvu heim til skrafs og ráðagerða. Staðan er óþægilega mikið farin að minna á Kalda stríðið.
Haft er eftir Mark Rutte forsætisráðherra Hollands að afar líklega beri Rússar ábyrgð á árásinni. Í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ESB ríkjanna segir að „engin önnur sennileg skýring sé fyrir hendi“ á eiturárásinni á fyrrum njósnarann Sergei Skripal og dóttur hans Yuliu, sem eru enn liggja þungt haldin á spítala.
Evrópusambandið lýsir einskoruðum stuðningi við Breta í málinu í yfirlýsingu sinni og segir árásina alvarlega ógnun við sameiginlegt öryggi landanna.
Theresa May lýsti þakklæti sínu fyrir stuðninginn og sagði þetta snúast um að standa saman um sameiginleg gildi gagnvart hótunum Rússa.