Esb-bréf gunnars braga afdrifaríkt

„Á meðan Viðreisn hélt áfram að mótast gerðu ríkisstjórnarflokkarnir tveir sitt allra besta við að draga úr fylgi sínu. Það sem bar hæst var ákvörðun Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkisráðherra, að slíta viðræðum við Evrópusambandið þann 12. mars án þess þó að spyrja Alþingi á undan. Sem var, eftir á að hyggja, skynsamleg ákvörðun í ljósi þess að þorri landsmanna hefði frekar viljað ljúka aðvildaviðræðum og sjá samning sem hefði að öllum líkindum verið þjóðinni til hagsbóta, en hagsmunaröflum Framsóknar að falli.“

Svo segir í áramótaannál Viðreisnar sem Geir Finnsson og Katrín Kristjana Hjartardóttir skrifa undir.

Er rifjað upp í annálnum að Viðreisn hafi vel látið í sér heyra á þessum tíma. „Örfáum klukkustundum eftir ákvörðun utanríkisráðherra mættu ríflega hundrað manns niður á Austurvöll til að mótmæla og síðar fylgdu fleiri, talsvert stærri mótmælafundir sem töldu mörgþúsundir manna. Jafnframt var efnt til stuðningsmannafundar þar sem niðurstaðan var sú að nauðsynlegt væri fyrir nýtt, heiðarlegt, frjálslynt og markaðssinnað afl að leiða ríkisstjórn eftir næstu kosningar til Alþingis, enda augljóst að núverandi stjórn myndi ekki efna gefin kosningaloforð.“

Ákvörðun Gunnars Braga átti þátt í að næsti málefnafundur Viðreisnar snerist um aðild Íslands að Evrópusambandinu „og eins og búast mátti við komust færri að en vildu þegar hann var haldinn 23. mars. Alls mættu yfir 200 manns á þennan fund. Þeir Ásgeir Jónsson og Vilhjálmur Egilsson fjölluðu um Evrópusambandsaðild með mjög málefnalegum hætti“.
Samkvæmt annálnum kemur ekkert í veg fyrir að Viðreisn bjóði fram næst þegar kosið verður til þings en áður hefur Hringbraut fjallað um að þar stefni flokkurinn á öll kjördæmi landsins.

„Árið 2016 höldum við áfram að móta Viðreisn og hlökkum til að gera það í samstarfi við alla þá sem áhuga hafa á stofnun frjálslynds stjórnmálaflokks sem vöntun hefur verið á í of langan tíma. Enn er nokkuð langt í kosningar og mikilvægt að undirbúa framboð af fullum krafti. Alþingiskosningar 2017 verða þjóðinni mjög mikilvægar, enda löngu kominn tími fyrir heiðarlegt stjórnmálaafl sem stendur við gefin loforð um frjálslyndi og jafnrétti.“