Árleg umræða um skýrslu utanríkisráðuneytisins um utanríkismál Íslands var á Alþingi hinn 4.maí sl. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fylgdi skýrslunni úr hlaði en utanríkisráðuneytið sér um ritun hennar.
Við það tækifæri vék Jón Steindór Valdimarsson þingmaður Viðreisnar að þessum orðum í skýrslunni: \"Nú þegar umræða hér á landi um viðskiptastefnuna er að mestu laus úr viðjum kröfunnar um aðild að Evrópusambandinu er full þörf á að styrkja starf okkar inna n EFTA og EES.\"
Þá sagði Jón Steindór: \"Ég er algörlega sammála ráðherranum um seinni hluta ræðunnar en mér finnst fyrri parturinn býsna skringilegur og vísa ég þar til stjórnarásttmálans þar sem skýrt er kveðið á um það að komi fram tillaga um þjóðaratkvæði á síðari hluta kjörtímabilsins verði það mál leitt til lykta. Mig langar að biðaja hæstvirtann ráðrehrra að fara aðeins yfir það með okkur hvað hann á við með þessum \"viðjum\"?\"
Jón Steindór er sammála því að styrkja skal samvinnu og samstarf um Evrópumál innan EFTA og EES. Ummæli Jóns Steindórs eru nokkur tíðindi en eru þó aðeins staðfesting á því að Viðreins telur að setja eigi ESB aðildina á dagskrá íslenskra stjórnmála.
rtá
Nánar www.althingi.is