Esb-aðild hagfelldust fyrirtækjum

"Nauðsyn­legt er að af­nema gjald­eyr­is­höft til að halda stór­um alþjóðleg­um fyr­ir­tækj­um í land­inu og búa bet­ur að þeim fjöl­mörgu fyr­ir­tækj­um sem geta sótt sér fjár­magn er­lend­is," segir í stjórnmálaályktun lands­fund­ar Sam­fylk­ing­ar­inn­ar sem sett­ur var fyrr í dag. Besta leiðin til þess sé inn­ganga í Evr­ópu­sam­bandið og upp­taka evru.


„Upp­námið sem skap­ast hef­ur um framtíð Íslands inn­an Evr­ópu stefn­ir tæki­fær­um allra í hættu. Far­sæl Evr­ópu­sam­vinna er ein for­senda þess að hér þró­ist öflugur vinnu­markaður og að kjör launþega batni. Þjóðin á að fá tæki­færi strax til að ákveða fram­hald aðild­ar­viðræðna við Evr­ópu­sam­bandið,“ seg­ir enn fremur í til­lög­unni.


Þar segir jafnframt að rík­is­stjórn­in þurfi að virða þær meg­in­regl­ur sem Alþingi mark­ar með lög­um og þings­álykt­un­um en ganga ekki fram í blóra við þær eins og gert hef­ur verið við meðferð aðild­ar­um­sókn­ar og ramm­a­áætl­un­ar. „Við vilj­um auka áhrif al­menn­ings á ákv­arðana­töku hins op­in­bera. Styrkja þarf fag­lega stjórn­sýslu og verja hana fyr­ir póli­tísk­um af­skipt­um,“ seg­ir í stjórnmálatillögunni sem verður til efnislegrar meðferðar á landsfundinum á Hótel Sögu um helgina.