Már Guðmundsson Seðlabankastjóri er gestur Þjóðbrautar í kvöld. Þar talar hann um vaxtalækkunina, stöðu efnahagsmála og hvaða hættur hann sér framundan. Hann segir sterka stöðu okkar vera öfundsverða. Hér sé allt í fullum gangi og hagkerfið á fullum snúningi.
Már segir innflæði peninga ekki vera vegna vaxtastefnunnar, frekar vegna gengisins, sem er hátt um þessar mundir, ekki síst sökum sterkrar stöðu ferðaþjónustunnar.
Viðtalið er á dagksrá klukkan 21:00. Umsjón hefur Sigurjón M. Egilsson.