Eru ummæli forsetans liður í spuna?

Hvað býr að baki orðum forseta Íslands um að umburðarlyndi gagnvart innflytjendum eigi skrifast á barnslega einfeldni? Þetta var ein af meginspurningunum sem svara var leitað við í Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld.

Það voru þau Andri Ólafsson, ritstjóri Íslands í dag og Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans sem settust að þessu sinni á rökstóla með Sigmundi Erni, ritstjóra Hringbrautar - og meginspurningar í fyrrihluta þáttarins snerust um meininguna að baki umdeildum orðum forsetans í garð útlendinga sem féllu í samtali hans við Hallgrím Thorsteinsson í Vikulokunum á RÚV um helgina.

Þáttinn má sjá hér á hringbraut.is eins og aðra þætti stöðvarinnar, en að þessu sinnir voru ritstjórarnir á einu máli um að það sé engin tilviljun að Ólafur Ragnar Grímsson setji fram þessa skoðun sína á þessum tíma árs, aðeins mánuði áður en hann ætlar að tilkynna hvort hann ætli að bjóða sig enn og aftur fram til forsetaembættisins. Andri Ólafsson metur það svo að forsetinn sé með þessum orðum sínum að tala inn í \"sinn hóp\", hinn þögla íhaldskjarna í íslensku samfélagi sem oft og iðulega sé ósammála \"góða fólkinu\" sem stjórni að mestu leyti umræðunni í fjölmiðlum hér á landi, en þessi sami hópur sé jafnframt bakland Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra en augljóst sé að þeir séu í bandalagi um að halda áfram völdum. Ólafur Ragnar hafi með öðrum orðum komið ágengri umræðu um fjölmenningarsamfélagið á dagskrá og þar með hafi stjórnmálamenn sem vilji hafa hana sem háværasta afsökun til að leggja orð í belg. Undir þetta tekur Þórunn Elísabet, því þótt forsetinn sé jafnan óútreiknanlegur sé aldrei tilviljun um hvenær hann vilji tjá sig og hvað hann vilji þá tala um. 

Í þætti gærkvöldsins var einnig talað um bága stöðu kvenviðmælenda í íslenskum fréttum og umræðuþáttum og ótrygga afkomu íslenskra fjölmiðla sem víðast hvar erlendis eru styrktir með framlögum ríkissjóða, en athygli vekur að hér á landi nýtur aðeins einn útvalinn miðill örlætis stjórnmálamanna.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30, en í þáttunum eru fréttamál líðandi stundar brotin til mergjar og frammistaða helstu viðmælenda metin og mæld.