Ekki hefur enn komið í ljós hver eða hverjir lögðu út hálfan milljarð fyrir skömmu til að bjarga Birni Inga Hrafnssyni og félögum úr margvíslegum vandræðum vegna rekstrar Vefpressunnar.
Stofna hefði mátt sömu fjölmiðla fyrir tíundahlut upphæðarinnar í stað þeirra léna og tækja sem greitt var fyrir nokkrum klukkustundum fyrir yfirvofandi gjaldþrot.
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður hefur einn komið fram fyrir hönd kaupenda og reyndar fullyrt að hann einn eigi félagið sem rekur nú miðla Björns Inga.
Það þykir fæstum í viðskiptalífinu trúverðugt eða einu sinni sennilegt.
Skömmu eftir að Björn Ingi slapp frá Glæsivöllum kalinn á hjarta lét hann stofna lénið samvinnuflokkurinn.is, sem var merki um að pólitísk tíðindi væru í uppsiglingu.
Örskömmu síðar klauf Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Framsóknarflokkinn, en hugnaðist betur að kalla nýja framboðið Miðflokkinn. Þeir félagar gengu svo saman í eina sæng.
Enginn veit enn hverjum þótti það þess virði, að punga út hálfum milljarði fyrir lén og tæki í eigu Vefpressunnar, en í gær birti Sigurður G. Guðjónsson þessi ummæli á facebook:
„Viðreisnar - Bensi er á Bylgjunni. Flokkur hans hefur ekkert afrekað í ríkisstjórn hælir sér af skuldalækkun ríkissjóðs. Hvers vegna skyldi Viðreisnar - Bensa vera þetta mögulegt. Svarið er einfallt það er fyrst og síðast Sigmundi Davíð að þakka sem þorði að hjóla í vogunarsjóðina sem Steingrímur J. hafði gefið tvo banka árið 2009.“ [Stafsetningin er Sigurðar.]
Þarna koma saman tveir þræðir af nokkrum sem halda saman söfnuðinum sem hefur myndast í kringum Sigmund Davíð. Annars vegar dýrkun á honum sem ofurhetjunni, sem bjargaði Íslandi með logandi sverði undan árásum hrægammanna.
Hins vegar sú furðuhugmynd að Steingrímur J. Sigfússon hafi gefið kröfuhöfum Glitni og Kaupþing. Þessu hafa aðeins tveir aðrir einstaklingar haldið fram, Vigdís Hauksdóttir og Víglundur Þorsteinsson.
Alþingi fól Brynjari Níelssyni að rannsaka þessar ásakanir. Hann kynnti sér gögn málsins og sló fullyrðingarnar út af borðinu sem hverja aðra þvælu. Líklega er þó óhætt að fullyrða að Brynjar sé enginn aðdáandi Steingríms J.
Innan bæði fjölmiðla og viðskiptalífs spyr fólk sig samt sömu spurningar eftir þessa merkilegu facebook-færslu Sigurðar G.
Glittir þarna einhvers staðar í skýringar á því hverjum þótt þess virði að kaupa lén og tölvur á hálfan milljarð?
Eru þræðir að birtast?
Fleiri fréttir
Nýjast