Eru íslendingar eftirbátar annarra?

Birgir Jakobsson landlæknir verður meðal gesta í Þjóðbraut á Hringbraut í kvöld. Um margt er að ræða.

Í nýrri skýrslu Alþýðusambandsins kemur meðal annars fram að Ísland er sú þjóð sem varði næstminnstu hlutfalli vergrar landsframleiðslu til fjárfestinga í fastafjármunum heilbrigðisþjónustunnar á árinu 2013, eða aðeins innan við 0,1%. Aðeins Mexíkó fjárfesti hlutfallslega minna en Íslendingar í fjármunum til heilbrigð- isþjónustu.

Landlæknir hefur fundið að því að sérfræðilæknar á Landspítalanum skuli samtímis starfi þar reka eigin læknastofur utan sjúkrahússins.

Hann hefur einnig tjáð sig um að ekki sé rétt að hafa frían aðgang að allri heilbrigðisþjónustu, sem er eitt keppikefli flestra stjórnmálaflokka núna.

Sigurjón M. Egilsson mun ræða við Birgi og verður viðtalið á dagskrá Þjóðbrautar klukkan 21:00.