Eru gínurnar komnar með bótox?

Útlitsdýrkun hefur mjög verið til umræðu í samfélaginu á undanliðnum misserum og virðast margir vera þeirrar skoðunar að tískuiðnaðinum sé þar svo að segja ekkert heilagt.

Í þessu efni hefur einkum verið rætt um þann þrýsting sem ungar stúlkur, jafnvel börn verða fyrir af hálfu seljenda margs kyns varnings sem á að bæta útlit fólks, en hann þykir oft og tíðum vera á mörkum þess smekklausa. Þar við bætast sífellt meiri kröfur um að lagfæra skrokkinn, svo sem varir, brjóst og jafnvel kynfæri í seinni tíð. 

Dyggur áhorfandi Hringbrautar sendi ritstjórninni myndina sem fylgir þessari frétt og vildi láta þá spurningu fylgja með hvort jafnvel gínurnar í útstillingargluggum tískuvörubúðanna hér á landi væru búnar að fá sér bótox í varirnar.

Ósagt skal látið hvort svo sé, en lesendum Hringbrautar látið það eftir að svara spurningunni í sínum ranni.