Eru ekki skúrkar í hettupeysum

„Það er ekki bara tilraunum til netsvika sem hefur fjölgað, það hefur orðið kúltúrbreyting í þessum iðnaði. Þetta eru ekki lengur einhverjir skúrkar í hettupeysum, það er liðin tíð. Þetta eru fyrirtæki“, segir Hermann Þ. Snorrason, sérfræðingur hjá Landsbankanum.

„Þetta er vel þjálfað og hámenntað fólk sem er að vinna í þessu. Það er verkaskipting og þetta er átta til fjögur vinna“, segir Hákon Lennart Aakerlund, yfirmaður netöryggismála hjá Landsbankanum

Hákon og Hermann eru gestir Lindu Blöndal í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræða þeir ýmsar hliðar netglæpa, en Landsbankinn birti nýverið úttekt á netglæpum á árinu 2018.

Aldrei meira tjón

Aldrei hefur hlotist meira tjón af netglæpum en á liðnu ári. Gagnalekum fjölgar milli ára, sífellt fleiri kortanúmer ganga kaupum og sölum, illa fengnum lykilorðum er dreift sem aldrei fyrr og netþrjótar beita sífellt þróaðri aðferðum. Talið er að netsvik hafi tekið fram úr fíkniefnum, þ.e. að hagnaður netglæpa hafi að öllum líkindum verið meiri í fyrra en af fíkniefnaframleiðslu, eða um 190.000 milljarðar króna.

Umfang netglæpa hefur vaxið það hratt frá árinu 2004 að sérfræðingar telja að á árinu 2021 muni efnahagslegt tjón vegna netglæpa á heimsvísu nema 700.000 milljörðum króna.

Aðspurður segir Hákon mega líkja netglæpum og baráttunni gegn þeim við stríð, milli notenda og netþrjóta.

Lífsstílsöpp vinsælustu skotmörkin

Lífsstílsöpp eru vinsælustu skotmörk netþrjóta þar sem þau eru öðrum öppum líklegri til að gera staðsetningu snjalltækis aðgengilega öðrum og til að geyma símanúmer og aðrar viðkvæmar persónuupplýsingar, t.d. um heilsufar. Þess konar upplýsingar eru verðmeiri en almennari upplýsingar.

Á síðasta ári fjarlægði Google Play Store milljón öpp vegna grunsemda um alvarlega öryggisveikleika. Hermann segir þó lífsstílsöppin ekki endilega vera með veikara öryggi.

„Það má kannski segja að þau séu áhugaverðust en eru ekkert endilega í öllum tilfellum með veikara öryggi, það er ekki tilfellið. Þau eru að safna þess háttar upplýsingum að þau hafa ríkari tilhneigingu til þess að gagnast við gagnaöflun. Gefa bæði upp staðsetningar og sögulegar staðsetningar, greiðsluupplýsingar og margt fleira“, segir Hermann.

Nánar er rætt við Hákon og Hermann í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut sem hefst kl. 21:00 í kvöld.