Ertni og frýjun

Elísabet II drottning Breta sagði í jólaávarpi sínu að konungsfjölskyldan myndi eignast nýja tengdadóttur á næsta ári. Barnabarn drottningar prinsinn Henry Charles Albert David (Harry) áformar að kvænast Meghan Markle sem er bandarísk kona.

Prinsinn hefur margt til síns ágætis. Þó þykir árátta hans til að vekja athygli á sér með ögrandi framkomu og storkun og stíðni ámælisverð. Þá er hann sagður hinn mesti strigakjaftur þegar illa strendur á. Hann er af kunningjum sagður hafa tamið sér gróft tungutak lágstétta Breta þegar honum er mikið niðri fyrir. 

Nú hafa skósveinar Harry prins að hans undirlagi lekið því í bresku götublöðin að Harry og Meghan muni bjóða Barack Hussein og Michell Obama í brúðkaupið en ekki Trump forsetajónunum.

Sé þessi flökkufrétt sönn er hún til marks um þá áráttu Harry að erta og stríða. Sé hún ósönn dregur hún athygli að Harry prins en það er fátt sem hann metur meira en að vera baðaður sviðsljósin; einkum og helst sökum endemi og ögrana.

[email protected]