Erpur: „Í mars er ég að stúdera pescatarian“

Rapparinn Erpur Eyvindarson hefur tekið þátt í átakinu veganúar í nokkur ár en seinkaði því í ár og var vegan í febrúar í staðin og hefur nú nýlokið honum.

Rætt var við Erp í Fréttablaðinu í dag.

„Gallinn við að vera vegan í febrúar er að maður þarf að redda sér sjálfur en í janúar er vegan ættbálkurinn geðveikt að peppa mann og hjálpa til með næringarfræðina og svona,“ segir Erpur.

Hann segir að það hafi reynst honum erfiðast að finna staðgengla fyrir mjólkurafurðir, fisk og kjöt í mataræðinu.

Nú er hins vegar kominn nýr mánuður og kýs Erpur að kalla mars fiskfars-mars. „Í mars er ég að stúdera pescatarian,“ segir Erpur í samtali við Fréttablaðið.

Hann segist þó ekki ætla fá sér fiskfars en að nafnið hljómi engu að síður vel.

Erpur segir ekkert mál að gera góða vegan rétti en hann hefur mikið dálæti af taílenskum.

„Minn uppáhalds réttur er vegan Pad Ka Pow en uppistaðan í honum er heilög basilíka, chili, hvítlaukur og vegan fiskisósa.“