Erna Ýr og Bjarni Ben hnakkrífast: „Ertu stríðsölumaður fyrir Joe Biden?“

Á facebook síðu Bjarna Benedikssonar, Fjármálaráðherra hafa skapast miklar umræður um innrás Rússlands í Úkraínu, sem fjármálaráðherra tekur sjálfur virkan þátt í. Um er að ræða athugasemdir við færslu Bjarna þar sem hann fordæmir árás Rússlands á Úkraínu.

„Innrás Rússlands í Úkraínu er árás á okkar gildi; virðingu fyrir alþjóðalögum, áherslu á frið og lýðræðislegar framfarir. Hörmulegt skeytingarleysi gagnvart öllu sem skapar grundvöll framfara og velsældar. Við eigum að taka fullan þátt í aðgerðum NATO og fordæma þessa framgöngu.“

Ernu Ýr Öldudóttur líkar ekki þessi afstaða Bjarna og spyr: Ertu stríðssölumaður fyrir Joe Biden? Ísland á að standa utan við þetta eða ertu að reyna að gera landið okkar og alla Íslendinga að skotmarki?

Sem Bjarni svarar um hæl: hvað ertu að tala um?

Erna gagnrýnir þá að stjórnvöld taki afstöðu í málinu vegna tveggja landa sem eru ekki í NATO.

Bjarni svarar að Ísland sé NATO þjóð og að við hljótum að styðja þvingunaraðgerðir, fordæmingu og önnur viðbrögð samstarfsþjóða okkar á þeim vettvangi, með sama hætti og við höfum ávallt gert.

Þá spyr Þröstur Jónsson hvort Bjarna væri ekki nær að mótmæla ofbeldi Trudeu stjórnarinnar gegn Kanadísku þjóðinni?

Bjarni svarar: „Þröstur Jónsson ég vona að þú getir gert þér grein fyrir því hve þessi samanburður er glórulaus. Kanadískir borgarar búa í lýðræðisríki og eiga möguleika á að láta reyna á aðgerðir kanadíska stjórnvalda sem varða þeirra líf og heilsu. Það gerist væntanlega fyrir hlutlausum dómstólum enda er Kanada réttarríki. Ég ætla ekki að tjá mig um þau mál efnislega sem þú ert að tala um en bendi þér á að við erum hér til samanburðar að tala um stríð, árás með hervaldi á fullvalda þjóð. Hvernig dettur þér í hug að setja þessa hluti í þetta samhengi?“