Erling var á sjó fyrir og eftir kvótakerfið – Þetta var það sem breyttist

Mikil breyting varð á sjómennsku þegar kvótakerfið var sett á. Erling nokkur hefur vakið mikla athygli fyrir skrif sín á Facebook um málið en hann kveðst hafa stundað sjómennsku á níunda áratugnum um það leyti sem kvótakerfið var sett á. Hann gefur lítið fyrir tal sérfræðinga sem vita ekki hvernig sjómennska var stunduð þá og nú.

Hann segist hafa séð breytinguna sem sneri að þeim sem stóðu á dekki togaranna eigin augum.

„Ég hef vitnað um hana áður og geri það nú enn og aftur: Í mjög stuttu máli varð sú breyting á að brottkast fór frá því að vera nánast ekki neitt í það að vera gegndarlaust.“

Síðan hafi sérfræðingar og stjórnmálamenn hamast við að segja að „umgengnin við auðlindina hafi batnað gríðarlega með tilkomu kvótakerfisins“.

„Um þetta geta téðir sérfræðingar ekkert vitað en ég vitnað: Þessu var þveröfugt farið.“