Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir því að erlent ferðafólk á Íslandi losi tvær milljónir innan sjö ára, en þeir voru rétt um milljón á síðasta ári. Tvöföldun erlendra ferðamanna gerist því á innan við áratug. Því er spáð að þegar á þessu ári verði erlent ferðafólk 1.170 þúsund.
„Það er ljóst í mínum huga að ef gestum fjölgar áfram eins og spár segja til um, sem allt bendir til, þá þarf að fara að flytja inn töluvert af vinnuafli til að mæta þessu. Eins og staðan er í dag búum við ekki yfir nægjanlegum fjölda með færni til að mæta fjölda gesta og tryggja gæði þjónustu,“ segir Edward H. Huijbens, prófessor við Háskólann á Akureyri og sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð ferðamála við Fréttablaðið í dag.
Tölur Hagstofunnar benda eindregið til þessa, en samtals fjölgaði starfsfólki á gististöðum, veitingastöðum, flutningsfyrirtækjum, ferðaskrifstofum, hjá ferðaskipuleggjendum og annarri bókunarþjónustu úr 9.200 manns árið 2008 upp í 11.000 árið 2012 og 14.600 árið 2014. Árleg fjölgun starfsfólks næstu árin í greininni má því vart vera undir 2500 manns.