Erlendur Sveinsson, helsta sögupersónann í glæpasagnabókum Arnaldar Indriðasonar hefur betur en Lisbet Salander í Millenium-þrennu Stieg Larson þegar hugur Frakka til norrænna reyfara er kannaður.
Franska bókmenntavefsíðan Bibliosurf lagði á dögunum áhugaverða könnun fyrir notendur sína þar sem afstaða þeirra til norrænna spennu- og glæpasagna var könnuð. Að auki spurðu aðstandendur vefsíðunnar hver væri uppáhaldspersóna lesenda úr norrænu glæpasögunum. Tilefnið var útgáfa fjórðu bókarinnar í Millenium seríu Stieg Larsson en það var þó okkar maður, Erlendur Sveinsson, sem bar höfuð og herðar yfir aðrar persónur!
Það má með sanni segja að Frakkarnir séu sólgnir í bækur Arnaldar Indriðason en nánast allar bækur hans hafa verið þýddar á frönsku.
Í könnuninni kom fram að 17% franskra lesenda væru orðin leið á lestri norrænna reyfara, en 83% ætluðu að halda áfram lestri þeirra. Þá kom einnig í ljós að langflestir lesendurnir nefna stemningu sagnanna sem aðalástæðu fyrir því að þeir taka sér norrænan reyfara aftur og aftur í hönd - og svo það merkilegasta fyrir okkur Frónbúa; Erlendur úr bókum Arnaldar er í uppáhaldi hjá 34% lenda, Lisbet hjá 28% þeirra og Kurt Valender hjá sama hlutfalli lesenda, eða 28%.