Erlendur fjárfestir kaupir meirihluta í icelandair hotels

Dótturfélag Malasíska fjárfestingafélagsins Berjaya Corporation er á lokametrunum við að tryggja sér 80 prósenta hlut í Icelandair Hotels, en Icelandair Group mun halda 20 prósenta hlut. Félagið var stofnað var af malasíska auðkýfingnum Vincent Tan, en hann er eigandi enska knattspyrnuliðsins Cardiff City. Heildareignir Vincent Tan eru metnar á um 100 milljarða króna. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag.

Icelandair Hotels er í eigu Icelandair Group, en félagið hóf söluferli á hótelkeðjunni árið 2018. Hagnaður hótelkeðjunar það ár voru rúmar 290 milljónir króna. Í febrúar tilkynnti nýstofnað dótturfélag Berjaya Corporation kauphöllinni í Kuala Lumpur að verið væri að ganga frá 1,6 milljarða króna kaupsamningi á lóðinni við Geirsgötu 11 í Reykjavík, sem hefur verið í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra HB Granda.