Hannes Hólmsteinn Gissurarson fer mikinn þessa dagana á samfélagsmiðlum við að kynna bók sína um Landsdómsmálið svokallaða, þar sem réttað var yfir Geir H. Haarde fyrir meint afglöp í starfi forsætisráðherra í aðdraganda hrunsins.
Sjá einnig: „Ekki hefur það verið, af því að þær voru konur?“
„Á Facebook-síðu Stefáns Pálssonar sagnfræðings hafa orðið fjörugar umræður um þá fullyrðingu mína í bókinni í landsdómsmálið, sem Stefán dregur í efa, hvort það hafi verið sérstakt áhugamál Steingríms J. Sigfússonar að ákæra Geir H. Haarde í landsdómsmálinu,“ skrifar Hannes.
„Samfylkingarmenn andmæla Stefáni og segja það einmitt hafa verið áhugamál VG að gera það. En Steingrímur kom upp um sig, þegar Bjarni Benediktsson bar fram tillögu um afturköllun. Þá lét hann öllum illum látum til að stöðva tillöguna. Erlendis var Steingrímur ekki eins borubrattur. Hér hneigir hann sig fyrir stækkunarstjóra Evrópusambandsins, Stefan Füle, í ársbyrjun 2012. Hér eru á einni mynd stækkunarstjóri Evrópu og smækkunarstjóri Íslands.“