„Ekki hefur það verið, af því að þær voru konur?“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson fer mikinn þessa dagana á samfélagsmiðlum við að kynna bók sína um Landsdómsmálið svokallaða, þar sem réttað var yfir Geir H. Haarde fyrir meint afglöp í starfi forsætisráðherra í aðdraganda hrunsins.

Hannes veltir nú steinum á Facebook síðu sinni. „Í bók minni um landsdómsmálið er sérstakur kafli um það fólk, sem rannsóknarnefnd Alþingis hlífði sérstaklega, án þess að það væri mér hjartans mál, að það yrði ásakað um vanrækslu eins og ráðherrarnir þrír og embættismennirnir fjórir, sem nefndin ásakaði,“ skrifar Hannes.

„Þetta voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins. Af hverju var þeim hlíft, en höggvið í aðra? Ég þykist sjá skýringuna um Jón, en ekki eins vel skýringar um Ingibjörgu Sólrúnu og Þorgerði Katrínu. Ekki hefur það verið, af því að þær voru konur?“