Erlendir verkamenn vilja matargjafir

 

Heimsóknir á Kaffistofu Samhjálpar eru yfir 180 á dag og meira en 65 þúsund máltíðir eru gefnar á hverju ári þar. Stór hluti þeirra sem þangað koma eru karlar, margir hælisleitendur og erlendir verkamenn. Aðsóknin á kaffistofuna eykst stöðugt og undanfarin tvö ár hafa orðið miklar breytinga á því hverjir koma þangað. Róbert Gunnarsson, matreiðslumaður á kaffistofunni og Vörður Leví Traustason ræða við Lindu Blöndal á Hringbraut kl.20 í köld, þar sem kaffistofan er í Borgartúni.

Matur í boði fyrir þá sem þurfa á hjálp að halda. Hins vegar er allt misnotað af einhverjum, bendir Vörður Leví á. Komi erlendir verkamenn inn á kaffistofuna í merktum fötum einhvers byggingafyrirtækis er þeim vísað frá. Einnig segja starfsmenn á staðnum að sumir komi og safni miklum mat skipulega í poka til að fara með út og koma í umferð úti í bæ. Reynt sé að koma í veg fyrir að fólk safni mat inni á kaffistofunni í stórum stíl.