Stóran hluta af tapi Íslandspósts má rekja til niðurgreiðslna fyrirtækisins á erlendum póstsendingum en kostnaðurinn hleypur á hundruðum milljóna, segir í frétt Morgunblaðsins í dag.
Í frétt blaðsins segir orðrétt:
„Samkvæmt skýrslu frá Copenhagen Economics er tap Íslandspósts vegna erlendra sendinga um 475 milljónir á ári. Netverslun fer vaxandi og því má búast við að sá kostnaður haldi áfram að aukast.
„Íslandspóstur mun í næstu viku ræða breytingar á starfsemi sinni og þær áskoranir sem þeim fylgja á opnu málþingi en Íslandspóstur hefur verið í rekstrarvanda síðustu ár. „Þetta eru miklir breytingatímar þannig að það eru allir að reyna að laga sig að því,“ segir Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Íslandspósts, í samtali við Morgunblaðið.
Sofia Nyström frá Copenhagen Economics er meðal þeirra sem munu halda erindi á málþinginu. Spurður um þessi áhrif af blaðamanni Morgunblaðsins - og þá sérstaklega niðurgreiðslu póstsins á kínverskum sendingum segir Bjarni þörf á að laga starfsumhverfið.
„Það er ýmislegt í laga- og regluumhverfinu sem er hamlandi eins og þessir alþjóðasamningar sem er ekkert auðvelt að eiga við.“