Erlend verslun undanþegin eftirliti

Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Verslanagreiningu. segir íslenska verslun ekki ná sér vel á strik eftir komu matvörurisans Coscto. „Costo kemur og keppir á svo ólíkum og mörgum mörkuðum. En ef við tölum um matvöruna og eldsneytið þá held ég að uppgjör hjá N1 nú síðast hafi verið vonbrigði. Uppgjör Haga þrátt fyrir tvær afkomuviðvaranir þá var það vonbrigði en uppgjör skeljungs koma á óvart og var frekar jákvætt en kannski skiptir máli að það er olíudreifingarfyrirtæki á Íslandi sem selur einmitt bensín inn til Costco“, segir Kjartan.

Kjartan Örn og Trausti Haraldsson frá rannsóknar og greiningafyrirtækinu Zenter fóru yfir nýjustu upplýsingar um aðsókn í Costco og stöðu íslenkskrar verslunar og einnig jólaverslunina framundan í nýjasta þætti Þjóðbrautar með Lindu Blöndal.

Trausti nefnir að í greiningu Zenter sjáist að það hafi ekki orðið eins mikil aukning í verslun Costco og áður og Bónus, Krónan og Nettó séu að endurheimta eitthvað af viðskiptavinum aftur.

Kjartan segir íslenska verslun búa við erfið skilyrði, að keppa við erlenda verslun sem þurfi ekki að hlíta sömu reglum um eftirlit. „Það er auðvitað gagnrýni sem Costco má fá. Hér eru að gerast áhugaverðir en samt leiðinlegir hlutir fyrir okkur sem eru að greina markaðinn. Núna hefur til dæmis Rannsóknarsetur verslunarinnar haldið úti greiningu á svonefndri smávöruvísitölu. Og eftir að Costso opnaði þá draga Hagar sig útúr smávöruvísitölunni þannig að nú eigum við ekki lengur virka smávöruvísitölu fyrir matvörumarkaðinn á Íslandi.

„Costco er bara eini aðilinn sem má bara komast upp með það að gefa engin uppgjör. Það veit enginn í raun og veru þeir hverju þeir velta á Íslandi. Hvaða hagnað þeir ætla að taka út úr landinu eða skilja eftir í skatttekjum í gegnum virðisaukaskatt og launaskatt starfsfólks. Þannig að þá má alveg gagnrýna þá fyrir það að vera ekki meira innlendir en þeir eru“, segir Kjartan.

Trausti bendir einnig á þetta: „Maður hefur ákveðnar áhyggjur af því, ekki bara með Costco heldur bara með fullt af alþjoðlegum fyrirtækjum hér á Íslandi og alltaf koma fleiri og fleiri. Þetta er mörg fyrirtæki með mikla stærðarhagkvæmni. En svo er íslenskur aðili með rekstur hér á landi og hann getur ekki stækkað eða myndað aukna stærðarhagkvæmni heldur er hann þá með markaðsráðandi stöðu á Íslandi og er stoppaður af“. Hann tekur sem dæmi að Hagar og Lyfju máttu ekki sameinast.

„Hvenær ætla samkeppnisyfirvöld að opna á skilgreninguna á markaðnum“, spyr Kjartan. „Það féll dómur um Forlagið sem er langstærst hér landi í bókaútgáfu þar sem þeir voru skilgreindir á Norðurlandamarkaði, ekki bara markaðnum Íslandi“.

Íslensk verslun þarf að vera í sókn en ekki vörn, segja Kjartan og Trausti. „Hvar eru vildarkerfin? Og hvaða aðferðum ætlar þú að beita til að tala við viðskiptavininn?“, spyr Kjartan íslenska verslunarmenn.