Erlend og innlend fyrirtæki í rekstri sjúkrahótela eru meðal þeirra sem sýna áhuga á fyirhuguðu útboðu á rekstri sjúkrahótels við Landspítalann.
Útboðið hefur ekki farið fram þótt styttist í að sjúkrahótelið verði tilbúið, að því er kemur fram í frétt Morgunblaðsins í dag.
Bygging sjúkrahótelsins á Landspítalalóðinni við Hringbraut hefur tafist, meðal annars vegna þess að ákveðið var að nota aðra klæðningu utan á húsið en áformað var, að sögn Gunnars Svavarssonar, framkvæmdastjóra Nýs Landspítala ohf. Hann segir að húsið sé nær fullbúið að innan. Búist við að hægt verði að afhenda Landspítalanum húsið í byrjun júlí.