Erla telur Frosta Loga hafa farið langt út fyrir sinn verkahring

Erla Gunnarsdóttir segir í samtali við Fréttablaðið hafa triggerast mjög þegar fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason sendi út afsökunarbeiðni fyrr í vikunni á Facebook-síðu sinni.

Stundin var með umfjöllun í vikunni þar sem Edda Pétursdóttir sagði frá sambandi sínu við þekktan fjölmiðlamann en hún nafngreindi hann ekki.

Í viðtalinu greindi hún frá ofbeldi sem hún varð fyrir af hans hálfu og sagðist meðal annars hafa óttast hann í tæpan áratug.

Í kjölfarið steig Frosti sjálfur fram á Facebook-síðu sinni og sagðist vera umræddur maður og baðst afsökunar og sagðist vera í sjálfsvinnu og bataferli.

Sú afsökunarbeiðni kom hins vegar illa við Erlu sem tjáir sig í helgarblaði Fréttablaðsins í dag um málið.

Erla segir frá umgengnismáli sínu við barnsföður hennar sem rekið var hjá sýslumanni frá 2019 til 2020. En Frosti gengdi stöðu trúnaðarmanns barnsföður hennar hjá SÁÁ á þessum tíma.

Að sögn Erlu er hún verulega ósátt við afskipti Frosta sem trúnaðarmanns AA-samtakanna af umgengnismáli hennar og telur hann hafa farið langt út fyrir sinn verkahring.

Frosti sagði manninn ekki ofbeldismann í bréfi sem hann sendi sýslumanni, „xxx er ekki ofbeldismaður og hefur aldrei verið.“

Bréfið innihélt ýmsar aðrar staðhæfingar og þá mætti Frosti jafnframt með manninum á fund hjá Barnavernd.

Frosti segir sjálfur í samtali við Fréttablaðið að það sé ekki endilega hlutverk trúnaðarmanns að bera slíkt karaktervitni fyrir skjólstæðinga sína og að hann hafi ekki gert það í umboði samtakanna.

Varðandi staðhæfingu í bréfi til sýslumanns: „xxx er ekki ofbeldismaður og hefur aldrei verið,“ segist Frosti mögulega hafa tekið of djúpt í árinni og bætir við að hann hafi verið í góðri trú og hafi ekki haft neinar upplýsingar um kærur.

Viðtalið við Erlu og Frosta má lesa í heild sinni hér.