Þetta er í þriðja sinn sem Mannréttindadómstóll Evrópu dæmir Erlu í hag gegn íslenska ríkinu en vart munu vera þess dæmi að sami einstaklingurinn hafi þrisvar farið með sigur af hólmi í málatilbúnaði gegn ríki sínu.
Niðurstaða Mannréttindadómstólsins í morgun er í þá veru að hæstiréttur hér á landi hefði brotið gegn tíundu grein mannréttindasáttmála Evrópu um tjáningarfrelsi þegar Erla var dæmd sek fyrir að setja ekki fyrirvara við lýsingu atburða sem birtir voru í blaðagrein beint úr ákæru og dæmd ábyrg fyrir fyrirsögn á forsíðu.
Árið 2007 starfaði Erla hjá DV. Þá skrifaði hún frétt úr undirheimunum með fyrirsögninni "Hræddir kókaínsmyglarar“ og fjallaði þar um menn sem freistuðu þess að koma eiturlyfjum ólöglega inn í landið, en mennirnir voru sýknaði í málinu. Erla var dæmd ábyrg fyrir fyrirsögninni sem þótti um of gildishlaðin og án varnagla, en lögmaður hennar, Gunnar Ingi Jóhannsson, segir að þar hafi hæstiréttur brugðið út af áratuga hefð í framkvæmd þágildandi prentlaga sem var breytt árið 2011.
"Ég var í hálfgerðu kvíðakasti í morgun en svo líður mér alveg frábærlega vel,“ segir Erla við gamla samstarfsfélaga sína á DV í morgun sem nú reka vefmiðilinn stundin.is í morgun, en ítarlega er fjallað um málið á þeim miðli í dag.
Í dómi Mannréttindadómstólsins er íslenska ríkinu gert að greiða Erlu tæplega 700 þúsund íslenskra króna í skaðabætur innan þriggja mánaða.