Leiðarahöfundur Morgunblaðsins, Davíð Oddsson ritstjóri, varar í dag við uuppboðsleið í sjávarútvegi. „Nýjasta tilraunin til að eyðileggja stjórnkerfi fiskveiða hér við land er að gera kröfu um að Íslendingar taki upp uppboðskerfi aflaheimilda eins og Færeyingar hafa gert tilraunir með,“ segir þar.
Leiðarahöfundurinn finnur til með útgerðinni: „Íslenskur sjávarútvegur er ólíkur sjávarútvegi flestra annarra að því leyti að hann stendur ekki aðeins undir sér heldur einnig undir stórum hluta þjóðarbúsins. Hann greiðir skatta, sem kallaðir eru veiðigjöld, umfram aðrar greinar atvinnulífsins og hann á í harðri samkeppni á erlendum mörkuðum við niðurgreiddan sjávarútveg, eða í það minnsta sjávarútveg sem ekki greiðir slíka umframskatta. Þetta er erfitt rekstrarumhverfi...“
Um þetta verður vafalaust tekist á í komandi kosningum. Er sjávarútvegurinn fær til að greiða meira til samfélagsins eða ekki? Varnir verða teknar upp einsog sjá má í Morgunblaðinu í dag og á sama tíma líta aðrir til Færeyja og þess sem þar er gert. Framundan eru spennandi tímar í íslenskum stjórnmálum.