Rithöfundurinn og ljóðskáldið Sigurbjörn Þorkelsson hefur barist við ólæknandi krabbamein um þriggja ára skeið og deildi þeirri lífsreynslu sinni með áhorfendum Hringbrautar í þættinum Örlögin í kvöld. Þátturinn er endursýndur í dag og um næstu helgi á Hringbraut.
Fyrir þremur árum fékk hann símhringu út á Krít, þar sem hann var í sumarleyfi með eiginkonu sinni, en hinum megin línunnar var læknir sem sagði honum að hann hefði greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli. Honum fannst sólin sortna á himni og grasið visna í kring þar sem hann stóð með farsímann í hendi og langaði helst af öllu að henda honum út í nálæga sundlaug.
Við tók áralöng barátta við illvígan sjúkdóm sem þyrmdi engu - og virtist einu gilda hvort blöðruhálskirtillinn var fjarlægður og Sigurbjörn síðar beittur geislameðferð eða hann skorinn margsinnis upp; meinið dreifði sér um líkamann og hver vonbrigðin tóku við af öðrum.
Þegar lyfjameðferðin, síðasta úrræðið, hófst fyrir nokkrum misserum varð Sigurbjörn fyrir hugljómum á gospeltónleikum í Lindakirkju í Kópavogi og það er sem sú andlega hjálp hafi haldið aftur af útbreiðslu meinsins, en gildi þess hefur ekki hækkað á ný, sem er mikið gleðiefni fyrir Sigurbjörn og fjölskyldu hans, en hann er þó fyllilega meðvitaður um sinn veruleika; meinið lúrir vitaskuld í felum og mun fyrr eða síðar minna á eyðileggingarmátt sinn.
Viðtalið við Sigurbjörn er áhrifamikið, enda lýsir hann aðstæðum sínum af miklu hispursleysi, meðal annars frá þeim þætti vandans sem felst í minnkandi kyngetu og því hvernig karlmennskan hverfur svo að segja úr karakter manns þegar jafnt krabbinn og meðferðin við honum ræðst á viðkvæmasta part líkamans, en það segir Sigurbjörn vera erfitt hlutskipti fyrir mann um fimmtugt. .
Örlögin eru frumsýnd öll mánudagskvöld klukkan 20:30.