Erfitt fyrir ólaf ragnar að beita sér

Ríkisstjórnin hefur ekki óskað eftir aðstoð forseta Íslands vegna viðskiptabanns Rússa. Sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum segir að það yrði litið alvarlegum augum af samstarfsaðilum Íslands í Atlantshafsbandalaginu ef Íslendingar myndu semja einhliða við Rússa.

Þetta kemur fram í samantekt á fréttavefnum visir.is í gær þar sem segir að þau skilaboð sem íslensk stjórnvöld hafi fengið frá Moskvu vegna viðskiptabannsins séu nær öll á sama veg: rússnesk stjórnvöld eigi erfitt með að sjá í gegnum fingur sér varðandi innflutning á íslenskum matvælum til Rússlands nema Ísland falli frá stuðningi við þvingunaraðgerðir ESB ríkja og vesturveldanna gagnvart Rússum.

Sem kunnugt er bættist Ísland á lista yfir ríki sem sæta viðskiptabanni hjá Rússum í síðustu viku en auk Íslands bættust við Albanía, Svartfjallaland, Liechtenstein og Úkraína. Þessi ríki styðja öll viðskiptaþvinganir ESB og Bandaríkjanna gagnvart Rússum.

Í fréttinni er Jón Ormur Halldórsson, stjórnmálafræðingur spurður að því hvort raunhæft sé að Ísland, sem stofnaðili að Natí, fari í einhverja samninga við Kremlarstjórnina til að aflétta innflutningsbanni á íslenskar vörur til Rússland: \"Íslendingar reyna alltaf, eins og allir gera, að huga að sínum hagsmunum og finna leiðir til þess gæta þeirra sem allra best, \" svarar Jón Ormur og bætir við: \"Það væri hins vegar ákaflega illa séð ef Íslendingar færu að gera einhverja sérsamninga við Rússland og það yrði mjög eftir því tekið. Ýmis konar stjórnmálahreyfingar í Evrópu myndu bregðast við því með þeim hætti að benda á að þetta og gera slíkt hið sama. Það er nákvæmlega þetta sem Pútín myndi gjarnan vilja sjá, að veikja þessa samstöðu sem þó tókst að ná eftir innrás Rússa í Úkraínu,“ segir Jón Ormur Halldórsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum.
 
Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur er spurður sömu spurningar: \"Það er alveg sjálfsagt að íslensk stjórnvöld reyni að fá þau rússnesku að hætta við þessar viðskiptaþvinganir og halda talsambandi við Moskvu,\" svarar hann og heldur áfram: \"Á sama tíma er hins vegar mjög mikilvægt fyrir Ísland, sem er mjög lítið ríki, að bindast nánum trúnaðarböndum við önnur lýðræðisríki í Vestur-Evrópu og taka höndum saman með þeim og reyna í sameiningu að eiga við rússneska björninn. Það verður að hafa í huga að aðgerðir Rússlands hafa leitt til þeirrar stöðu að friði í Evrópu hefur ekki verið stefnt í jafn mikla hættu frá síðari heimsstyrjöld. Lýðræðisríkin í Evrópu gátu ekki setið aðgerðalaus hjá,\" segir Baldur og minnir enn fremur á: \"Sérstaklega held ég að þetta skipti máli vegna þess hversu fámenn við erum og þeirrar staðreyndar að við getum hvorki varið landið né landhelgina,“ segir Baldur Þórhallsson en hann vísar þar til veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu.


Líklega enginn Íslendingur þekkir jafn vel til stjórnvalda í Moskvu og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Að sögn aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra hefur engin formleg ósk farið til forsetans um liðsinni í málinu enda er ekki hefð fyrir slíku. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Ólafur Ragnar funduðu áttu þó fund á fimmtudag á Bessastöðum og var þetta mál rætt þar.