„erfitt að sanna brottkastið“

„Vandinn í þessu er sá að það er erfitt að halda utan um það í hversu miklum mæli það er og hvar það á sér stað. Það er svo erfitt að sanna brottkastið og þess vegna er mjög erfitt að halda einhverju fram með fullri vissu um magn eða umfang. Við erum núna þessa dagana í ráðuneytinu að reyna að forma með einhverjum hætti hvernig við getum reynt að nálgast fyllri og betri upplýsingar,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um brottkast sjávarafla.

Kristján Þór var gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld.

Á dögunum gerði Ríkisendurskoðun stjórnsýsluúttekt á eftirliti Fiskistofu. Þar kom m.a. fram að eftirlit með brottkasti sé veikburða og ómarkvisst og raunverulegur árangur þess á huldu, enda hvorki til skýr árangursmarkmið né árangursmælingar. Stjórnsýsluúttektin var gerð að beiðni Alþingis eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur á RÚV fjallaði um ítrekað og mikið brottkast togarans Kleifabergs RE.

Veiðileyfissvipting vofir yfir Kleifabergi, enda er brottkast sjávarafla með öllu óheimilt. Í gær greindi Mbl.is frá því að At­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið hafi ákveðið að fresta réttaráhrif­um ákvörðunar Fiski­stofu um að svipta tog­ar­ann veiðileyfi sínu í tólf vik­ur vegna brott­kasts, á meðan kæra Útgerðarfé­lags Reykja­vík­ur  er til skoðunar.

Kristján Þór segir að einstaklingar geti eyðilagt fyrir heilum áhöfnum. „Við eigum bara að vera með refsingar með svipuðum hætti og annars staðar. Á stundum hefur mér þótt refsihlutinn í þessari löggjöf dálítið strangur. Hann á að vera strangur en það er mér mjög ofarlega í huga dæmi. Þá voru menn að rekast á einhvern karlfausk vappandi um með eina litla lúðu heim til sín og á þeim grunni átti að vera svipting veiðileyfis með afleiðingum fyrir alla áhöfn og tekjur o.s.frv. Þetta er brot og á meðan löggjöfinni er ekki breytt í átt til sekta eða einhvers slíks þá er þetta svona og við verðum einhvern veginn í verkinu sem framundan er að ræða hvort við viljum hafa einhvern annan hátt á þessu,“ segir Kristján Þór.

Viðtalið í heild sinni er að finna hér: