Slæm staða ríkisfjármála vó þyngst að ekki fannst samleið með flokkunum fimm sem hafa síðustu daga fundað um hugsanlega ríkisstjórn. Tilraun sem ekki gekk eftir.
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, og Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata, voru gestir Kastljóss í kvöld.
Benedikt sagði þar að ríkisfjármálin standa verr en nokkur hugði og því hafi verið talað um skattahækkanir, „...sem við gátum ekki sætt okkur við,“ sagði Benedikt. Hann sagði langt hafa verið milli Viðreisnar og VG. „Það voru miklar efasemdir um að við næðum saman.“
Birgitta var sýnlega ósátt með að viðræðunum hafi verið hætt í dag.
„Það kom mér á óvart. Ég hélt að mikil vinna væri framundan til að ná saman,“ sagði hún. „Það var ekki tímabært að hætta núna.“ Hún sagðist ekki vita hvað það varð sem olli því að Viðreisn og Björt framtíð ákváðu að hætta.
Helgi Seljan, sem stýrði umræðum spurði einkum Benedikt hvort hann hafi ekki vitað um stöðu ríkisfjármála hafandi verið í viðræðum við Sjálfstæðisflokk, flokk fjármálaráðherra. Benedikt sagðist ekki hafa vitað af stöðunni og hann hafi talið að við það borð hafi verið meiri vitneskja um stöðuna.
Það sem kom fram um hugsanlegar skattabreytingar nefndi Birgitta gistináttaskatt, komugjöld, og lægri endurgreiðslu á virðisaukaskatti hjá ferðamönnum.
Benedikt sagði okkur fram á erfiða tíma í ríkisfjármálum. Hann opnaði á að samþykktum breytingum á tekjuskatti yrði frestað um eitt ár en sagðist ekki vilja ofurskatta á eignir og eins er hann lítt hrifinn af hátekjuskatti, jafnvel þó mörkin yrðu dregin við 2,5 milljónir á mánuði. Hann sagði þann skatt þá bitna mest á sjómönnum.
„Eru sjómenn með tvær og hálfa milljón á mánuð,“ spurði Birgitta.
„Sumir hverjir,“ svaraði Benedikt.
- sme